Afmælishátið á Egilsstöðum

40 ára afmælishátíð Dekkjahallarinnar laugardaginn 31 ágúst síðastliðinn á Akureyri gekk svo vel að við ætlum að endurtaka leikinn á Egilsstöðum sunnudaginn 15 september!

Fólk tók að streyma að við ljúfa tóna DJ Lilju, tóku þátt í veglegri getraun þar sem giska átti á fjölda dekkjanagla í krukku, pylsuðu sig upp ásamt drykkjum og einnig var hægt að finna nammi og popp á hinum ýmsu stöðum. Ungviðinu þóttu einnig hoppukastalarnir og dekkjaþrautir ansi skemmtileg dægradvöl. Við fórum aftur í tíma með myndasýningu og einnig voru á staðnum nokkrir fornbílar

Við erum afskaplega þakklát viðskiptavinum fyrir frábæra mætingu og hlökkum til að sjá ykkur á Egilsstöðum á sunnudaginn

Hægt er að sjá myndir frá afmælishátiðinni á Akureyri hér.