Karfan er tóm.
Um okkur
Dekkjahöllin var stofnuð af Gunnari Kristdórssyni og var í eigu hans og fjölskyldu hans til ársins 2023. Dekkjahöllin er nú í eigu Vekru sem á m.a. Bílaumboðið Öskju, Bílaumboðið Unu, Landfara, Lotus Car Rental og Hentar. Fyrirtækið hefur verið í rekstri í háttnær 40 ár, byrjaði smátt en hefur vaxið jafnt og þétt og hefur nú starfstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík.
Í dag er fyrirtækið með hjólbarðaþjónustu, smurstöð og þvottastöð á Akureyri og hjólbarðaþjónustu og smurstöð á Egilsstöðum.
Dekkjahöllin er með hjólbarðaþjónustu á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, Skeifunni 5, Skútuvogi 12 og Miðhrauni 18, Garðabæ. Fyrirtækið flytur inn dekk, felgur og fleiri fylgihluti, sem seldir eru í smásölu og heildsölu.