Leita eftir stærð
Sumardekk
Yokohama BluEarth ES32
Hljóðlátt, gott grip, minni eldsneytiseyðsla
Lýsing
Yokohama BluEarth ES32 er nýtt dekk í fólksbílalínu Yokohama. Dekkin er með breiðar raufar í miðju munstrinu svo að vatn eigi góða leið. Hönnunin á miðraufinni (eldingin) er gerð til að bæta grip í bleytu.
Yokohama BluEarth ES32 notar appelsínuolíu í gúmmíblöndunni sem skilar sér í léttara dekk, minni eldsneytiseyðslu og betri endingu. Gúmmíblandan sem hefur sannað sig síðustu ár í dekkjum Yokohama
Yokohama leggur mikla áherslu á hljóðláta hönnun. BluEarth ES32 er þar engin undantekning. Samstarf Yokohama og japönsku geimferðastofnunarinnar og hvernig þau hafa náð að kortleggja hljóðið frá dekkjunum er að skila sér í hljóðlátari dekkjum.
Nánari upplýsingar um tæknilega eiginleika og EU-merkingu hér (stærðir skoðaðar undir "available sizes")