Leita eftir stærð
Heilsárs- og vetrardekk
Yokohama IG35
Hágæða nagladekk sem veitir hámarks grip við allar aðstæður
Lýsing
Frábært nagladekk frá japanska framleiðandanum Yokohama, sem er einn af stærstu hjólbarðaframleiðendum í heimi. Mjúkt gúmmí, einstök hönnun og mikið skorið munstur tryggir hámarksgrip við erfiðar vetraraðstæður.
-
16 línu naglamunstur
- Sérhannaðar vatnslosunarraufar auka vatnslosun og bæta hliðargrip
- Breið miðjurönd eykur stöðugleika í akstri
- 16 naglaraðir gefa aukið grip, betri aksturseiginleika og hljóðlátari akstur
- Yfirborð dekksins er sikksakk skorið sem veitir hámarks snertiflöt og virkni brúnanna
Einstök gúmmíblanda
Gúmmíblandan í Yokohama nagladekkinu byggir á sömu tækni og er í loftbóludekkinu. Vatnssogandi efni sem soga í sig bleytuna á veginum svo að gúmmíið snerti vegyfirborðið. Gúmmíið er alltaf að leitast eftir festu hvort sem það er við veginn eða þá ísinn sem er á veginum.
Aðlögunarhæfni eftir hitastigi
Gúmmíið beitir sér á mismunandi hátt eftir hitastigi. Í frosti -6°C eða meira er loftbólurnar og kísilefnin að grípa í svellið eða snjóinn.
Um og undir frostmark eru vatnssogandi efnin sjúga upp vatnsyfirborðið þannig að dekkið nái snertingu við ísinn eða veginn og tryggi þannig betra grip.
Þegar hitastigið er komið yfir sex gráður þá eru "hjálparefnin" í hvíld en gúmmíið tryggir hljóðlátan og þægilegan akstur.
Nánari upplýsingar um tæknilega eiginleika og EU-merkingu hér.