Leita eftir stærð
Heilsárs- og vetrardekk
Yokohama G073
Háþróað óneglanlegt loftbólu-vetrardekk
Frábær, hljóðlátur og umhverfisvænn kostur fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar
Lýsing
Yokohama G073 loftbóludekk er framleitt í Japan. Yokohama er einn af stærstu dekkjaframleiðendum í heimi.
Háþróað óneglanlegt vetrardekk með þriggja þátta vatnsgleypnitækni. Dekkið sogar í sig bleytu með hjálp loftbóla, kísil- og kolefnisflaga
Sérstök gúmmíblanda sem aðlagar sig að síbreytilegri veðráttu, þ.e. hámarksgrip og viðloðun í frosti, vatnsgleypnitækni í kringum frostmark og stífleiki við akstur á þurru malbiki.
- Þétt skorið munstur tryggir frábært grip og hljóðlátan akstur
- Harðskeytt og stefnuvirkt 3D munstur.
- Styrkt miðja með þrívíddarraufum og keilulaga hliðarveggjum skilar einstöku viðnámi á ísilögðum vegi, stöðugleika á þurrum vegi og minnkar slit með hjálp stærri snertiflatar.
- Þrívíddar vatnsraufar veita gott jafnvægi á vegi
- Skáhallandi raufar veita enn betri frammistöðu á ísilögðum vegi