Yokohama iG50
Geggjað grip án nagla
Frábær, hljóðlátur og umhverfisvænn kostur fyrir rafbíla og Hybrid bifreiðar
Lýsing
Yokohama býður upp á afburða línu af óneglanlegum vetrardekkjum sem hönnuð eru fyrir aðstæður á Íslandi og Norðurlöndunum. Mikil þróun hefur átt sér stað undanfarin ár. Útkoman eru hljóðlát og gripmikil dekk sem sameina kosti loftbólu-, harðskelja og „Nordic friction“ vetrardekkja.
IG50 loftbóludekkið er góður og hagkvæmur ónegldur kostur fyrir fólksbíla. Mjúkt og gripmikið gúmmí tryggir góða frammistöðu við fjölbreyttar vetraraðstæður.
Gúmmíblandan
Ein megin ástæða þess að þú missir grip á ísilögðum vegi er vatn á yfirborði íss. Venjulegt gúmmí flýtur á yfirborði vatnsins þar sem gúmmíið nær ekki í gegnum massa vatnsins og gúmmíið getur ekki náð almennilegu gripi í -6° til 0° gráðu. Hin einstaka hönnun frá Yokohama með vatns-sogs gúmmíblöndunni kemur dekkinu í snertingu við ísinn með því að soga upp vatnið sem er á yfirborðinu.
A) Vatnssogandi loftbólur
-Fjarlægir vatnsfilmuna á yfirborði íssins með hönnun sinni
-Hörð skel loftbólunnar grípur í svellið.
-Harða skelin heldur uppbyggingu dekksins þrátt fyrir mjúka gúmmíblöndu.
Vatns-sogandi hvítt gel
-Fjarlægir vatnsfilmu á yfirborði íss með sveigjanlegri hönnun þess.
Munsturshönnun og tæknileg uppbygging
1) Orkusparandi hönnun
Veitir eldsneytissparandi frammistöðu og stöðugleika með stjórnun á flæði þess sem fyrir verður.
2)Ósamhverf hönnun
Innri hluti: Munstrið hannað til að ná hámarksgripi á ís. Hefur stærri snertiflöt og er betur míkróskorið en ytri hluti.
Ytri hluti: Munstrið hannað til að ná góðu snjógripi og hefur fleiri rákir til að hámarka grip í snjó.
3) Þreföld 3D míkróskurður
Tveir mismunandi 3D skurðir eru breytilegir til að ná sem mestum árangri og jafnvægi á hverju munsturssvæði. Hver kubbur í munstrinu er hannaður til að styðja við hvorn annan sem skilar sér í frábæru gripi hvort sem er í snjó eða á ís.

4) Samverkandi kubbar
Miðbelti dekksins er hannað til að veita framúrskarandi hemlunar-eiginleika hvort sem er í bleytu, þurrum eða ísílögðum vegi.
5) Míkró-þverskurðir
Tryggja hámarks frammistöðu sem tryggir að dekkið er klárt í hemlum hvenær sem er.